Leifur Þorsteinsson – Sýningaröð 2011
Í tilefni af 30 ára afmæli Ljósmyndasfns Reykjavíkur í ár hefur staðið yfir á safninu sýningarröð á myndum Leifs Þorsteinssonar ljósmyndara, einum af stofnendum safnsins. Leifur, sem fæddur er árið 1933, er einn af brautryðjendum auglýsinga- og iðnaðarljósmyndunar á Íslandi og hefur í gegnum tíðina einnig tekið þátt í sýningum víða, bæði innanlands og utan. Má þar nefna þátttöku hans í heimssýningunni EXPO 70 í Osaka auk þess sem hann var í forsvari í myndavali fyrir Íslendinga á ljósmyndasýningunni Frozen Image á Scandinavia Today í Bandaríkjunum árið 1982.
1. hluti – Polaroid transfer
22.janúar – 21.mars
Í fyrsta hluta sýningaraðar Leifs Þorsteinssonar má sjá annars vegar Polaroid transfer myndir þar sem Polaroid- filma er yfirfærð á vatnslitapappír og því aðeins eitt eintak til að hverri mynd. Myndirnar sem eru í möttum og djúpum tónum voru hluti af sýningunni Kyrralíf sem var í Stöðlakoti og fékk Leifur Menningarverðlaun DV í listhönnun fyrir sýninguna. Bragi Ásgeirsson skrifaði um sýninguna í Morgunblaðinu þann 7. október 1993 og sagði „Alla þessa sýningu einkennir óvenjulegt látleysi og kyrrlát fegurð og svo vel tekst Leifi að fanga einkenni hvers myndefnis, að hvergi er um veikan punkt að ræða á allri sýningunni. Í myndunum… vinnur hann næstum í anda [franska 18. aldar] málarans J.-B.S. Chardins nema að hér er um að ræða ljósmyndir en ekki málverk, en verkin eru skyld að yndisþokka og látleysi.“
Hins vegar eru á sýningunni Polaroid pan ljósmyndir sem eru 35mm svart-hvítar skyggnur, skannaðar inn og prentaðar í tvílit.
Sýningarstjóri , Spessi ljósmyndari.
2. hluti – Landssmiðjan
21.mars – 8 maí 2011
Í öðrum hluta sýningaraðar Leifs Þorsteinsson ber að líta 15 myndir af Landssmiðjunni gömlu sem nú er horfin. Leifur tók myndirnar fyrir Iðnsýninguna í Reykjavík árið 1966. Leifur tók líka myndir af eldsmiðjunni sem ekki voru sýndar á iðnsýningunni þar sem sá verkháttur var talinn gamaldags, því er um mjög merkilega heimild að ræða. Myndirnar sýna bæði menn að störfum og vinnuaðstöðuna í Landssmiðjunni. Í myndunum má sjá samspil ljóss og skugga en Leifur notar náttúrulega birtu við myndatökuna. Birtan fellur á dökk verkfærin í eldsmiðjunni, sem hefur verið raðað haganlega á sinn stað eftir langan vinnudag. Segja má að birtan myndi ákveðna dulúð en á sama tíma kallar hún fram kyrrð og ró. Þrátt fyrir að umhverfið sé órólegt og óhreint er það líka fallegt og þaulskipulagt. Einbeitni og yfirvegun skín úr andlitum iðnaðarmannanna eins og ljósmyndarinn sé hvergi nálægur.
Sýningarstjóri , Bára ljósmyndari
3. hluti – Litur: Ólík tækni – ILFORD Royal og litprent
14.maí – 28.ágúst
Í þriðja hluta sýningaraðar Leifs Þorsteinssonar kennir ýmissa grasa, meðal annars eru ljósmyndir teknar af blómum á 4×5 tommu blaðfilmu af gerðinni „Kodacolor HD“ sem er með hærri litarmettun en venjulega filma. Ljósmyndirnar eru síðan prentaðar á litpappír (negatívan), tegund: ILFORD Royal sem ekki er til lengur en var framleiddur hjá Ciba í Sviss. Pappírinn er fyrst húðaður með speglandi lagi sem endurkastar ljósi, þannig fæst dýpri mettun í litina og kallar fram þessi áhrif. Myndirnar þrjár sem koma þar á eftir eru ljósmyndir teknar á svæði Björgunar í Grafarvogi.Leiðin til Bessastaða nefnist síðasta myndaröðin í þriðja hlutanum og skartar fimm ljósmyndum af byggingunum sem stóðu við veginn út á Álftanes en þóttu ekki hæfa því svæði og voru fjarlægðar.
Sýningastjóri – Bára ljósmyndari
4. hluti – Portrett af listamönnum
3. september– 3.nóvember 2011
Fjórði hluti sýningarraðar Leifs Þorsteinssonar er tileinkaður portrettljósmyndun. Um er að ræða 20 svarthvítar myndir, flestar teknar í kringum 1980, af helstu myndlistarmönnum þjóðarinnar þess tíma. Hluta af myndunum tók Leifur fyrir bókina Íslensk list sem gefin var út af bókaútgáfunni Hildi og kom út árið 1981 en útgefandi var Gunnar S. Þorleifsson.
Á sýningunni má sjá portrettmyndir allt frá Gunnlaugi Scheving, Finni Jónssyni og Kristjáni Davíðssyni til Nínu Tryggvadóttur, Sverris Haraldssonar og Hildar Hákonardóttur. Ljósmyndirnar eru teknar ýmist í stúdíói sem og vinnuumhverfi listamannanna.
Sýningarstjóri er Sissa ljósmyndari.
5. hluti – Mannlífsmyndir frá Evrópu
3.nóvember 2011 – 8. Janúar 2012
Í fimmta hluta sýningarraðar Leifs Þorsteinssonar er sjónum beint að mannlífsmyndum teknum í Evrópu á tímabilinu ca.1958 – 1980. Myndirnar tók Leifur á námsárum sínum í Kaupmannahöfn og á ferðalögum um Evrópu, m.a. frá London, París og Spáni. Þær gefa innsýn inn í daglegt líf fólks og sýnir það í ólíkum aðstæðum. Hvort sem um er að ræða verkamenn við vinnu á götum Kaupmannahafnar, aldraðan mann á kaffihúsi í París eða fólk í skírnarveislu á Spáni þá er það hið sammannlega sem Leifur nær að sýna okkur á áreynslulausan og eðlilegan hátt.
Sýningarstjóri er Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari




