Þann 19.ágúst sl. opnaði sýning á verkum íslenskra samtímaljósmyndara Ný náttúra / Frontiers of Another Nature í Frankfurter Kunstverein og stendur til n.k. sunnudags, 16. október sama dag og Bókasýningunni í Frankfurt lýkur þar sem Ísland er í ár heiðursgestur.
Í tengslum við sýninguna hefur verið gefin út samnefnd bók þar sem í fyrsta sinn er safnað saman á eina bók myndum sem segja sögu íslenskrar landslagsljósmyndunar síðustu eina og hálfa öld og er hluti efnisins úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Eins og segir í kynningartexta frá bókaútgáfunni Crymogeu þá er Ísland er í augum heimsins „land landslagsins“. Náttúruljósmyndun samtímans snýst hins vegar ekki lengur aðeins um „landslag“, heldur allt það sem býr á mörkum manns og náttúru. Í verkum íslenskra ljósmyndara hefur orðið til ný náttúra í „landi landslagsins“. Bókin er einnig til sölu í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar:
http://www.crymogea.is/Baekurnar/NyjustuUtgafur/NyNattura/
http://www.sagenhaftes-island.is/
http://www.fkv.de/frontend_en/ausstellungen_detail.php?id=900
