Laugardaginn 22. janúar opnuðu tvær nýjar sýningar á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Annars vegar Orri með sýninguna Innviðir og hins vegar Leifur – sýningaröð 2011. Um er að ræða fimm sýningar hjá Leifi yfir allt árið en hann er má segja heiðursljósmyndari Ljósmyndasafns Reykjavíkur 2011 á 30 ára afmælisári safnsins.

