Laugardaginn 9.janúar sl. voru haldnir tveir fyrirlestrar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem voru samstarf milli Blaðaljósmyndarafélags Íslands og Ljósmyndsafns Reykjavíkur. Max Houghton, ritstjóri Foto8 tímaritsins, fjallaði um samstarf ameríska ljósmyndarans Walker Evans og náins samverkamanns hans James Agee. Einnig talaði hún um bókina The Sweet Flypaper of Life þar sem ljósmyndir Roy DeCarava vinna saman með texta Langston Hughes og sýn þeirra á Harlem á fimmta áratugnum. Lagt var upp með að bókin miðlaði sýn þeirra á Harlem en verkefnið vatt svo upp á sig og hafði áhrif á þjóðfélagsbreytingar á þeim tíma.
Seinni fyrirlesturinn var í höndum þeirra Brynjars Gunnarssonar og Árna Torfasonar frá SKARA Photojournalism Collective um ljósmyndafrásagnir, uppbyggingu þeirra og muninn á þeim og myndröðum. Þeir kynntu einnig nýjann vef MIRO þar sem gefið verður út veftímarit einu sinni í mánuði með ljósmyndafrásögnum bæði frá íslenskum sem erlendum ljósmyndurum. Hlutverk þessa vefs og markmið er að kynna ljósmyndafrásagnir og koma þeim að í íslenskum fjölmiðlum.
Mæting á fyrirlestrana var vonum framar og líklegast voru hátt í 100 manns á staðnum.
jgá


