Henri Cartier Bresson Award
Henri Cartier Bresson Award eru veitt eru annað hvert ár og hafa m.a. þeir Ragnar Axelsson (RAX) og Einar Falur Ingólfsson verið þar tilnefndir af safnsins hálfu. Verðlaunin eru ætluð ljósmyndurum sem vinna í anda heimildarljósmyndunar en Henri Cartier-Bresson er goðsögn í alþjóðlegum ljósmyndaheimi. Hann er af mörgum talinn merkasti og fremsti ljósmyndari tuttugustu aldar og sérstaða hans liggur ekki síst í því hversu mikið af framúrskarandi ljósmyndum liggja eftir hann. Henri Cartier Bresson verðlaunin voru sett á fót árið 1988 af Robert Delpire sem er mikilsvirtur höfundur og útgefandi ljósmyndabóka. Meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaunin eru Josef Koudelka, Larry Towell og Fazal Sheikh.
Heimasíða: Henri Cartier Bresson Award
Hasselblad Award
Hasselblad Award sem fyrst voru veitt árið 1980, eru viðurkenning á ljósmyndara sem hefur unnið stórvirki á sviði ljósmyndunar. Þetta getur verið einstaklingur sem hefur unnið frumkvöðulsstarf í ljósmyndun, sem hefur haft ótvíræð áhrif á eina eða fleiri kynslóðir ljósmyndara eða sem hefur komið á fót einu eða fleirum alþjóðlega mikilvægum ljósmyndaverkefnum. Tilnefningu til þessara virtu verðlauna af hálfu Ljósmyndasafns Reykjavíkur hlaut nú síðast Ragnar Axelsson (RAX). Í dag standa verðlaunin í um 9 milljónum króna eða 500,000 sænskum krónum, gullmedalíu og viðurkenningarskjali. Auk þessa fær verðlaunahafinn einkasýningu í Hasselblad Center. Meðal verðlaunahafa eru Ansel Adams, Henri-Cartier-Bresson, Robert Frank, Cindy Sherman, Bernd og Hilla Becher, David Goldblatt og Nan Goldin.
Leopold Godowsky, Jr. Color Photography Awards
Verðlaunin voru sett á laggirnar til að heiðra Leopold Godowsky Jr. sem var einn þeirra sem fann upp Kodachrome filmuna og hefur tilkoma hennar haft gríðarmikil og varanleg áhrif í ljósmyndun. Tilgangurinn með þessum alþjóðlegu verðlaunum, sem voru fyrst veitt árið 1987, er að verðlauna framúrskarandi framlag á sviði samtíma litljósmyndunar og er valið úr tilnefningum frá virtum alþjóðlegum hópi sýningarstjóra, gagnrýnanda, ritstjóra og fagfólks á sviði ljósmyndakennslu. Meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaunin eru Yinka Shonibare frá Nígeríu, Alex Webb, New York og Paul Seawright frá Norður-Írlandi. Nú síðast tilnefndi safnið Bjargeyju Ólafsdóttur til verðlaunanna.
Heimasíða: Leopold Godowsky, Jr. Color Photography Awards
The Deutsche Börse Photography Prize
Markmiðið með verðlaununum er að verðlauna samtíma-ljósmyndara af hvaða þjóðerni sem er, sem lagt hefur af mörkum merkasta framlagið (fyrir sýningu eða bók) til ljósmyndunar í Evrópu árinu áður. Verðlaunin voru fyrst sett á laggirnar árið 1996 af The Photographer´s Gallery í London í þeim tilgangi að kynna það besta sem væri að gerast í alþjóðlegri samtímaljósmyndun. Deutsche Börse hafa styrkt verðlaunin um 30.000 pund frá árinu 2005. Verðlaunin kynna nýtt hæfileikafólk til leiks og beinir kastljósinu að því besta í ljósmyndaheiminum. The Photographer´s Gallery og Deutsche Börse hafa verið tilnefnd til Arts & Business International Award 2008 fyrir samvinnu sína við Deutsche Börse Photography Prize. M.a. hafa þau Guðmundur Ingólfsson og Katrín Elvarsdóttir hlotið tilnefningu til þessara verðlauna af hálfu safnsins.
Verðlaunin eru kynnt af The Photographer´s Gallery og styrkt af Deutsche Börse group.
Meðal verðlaunahafa eru Esko Männikkö, Jürgen Teller, Andreas Gursky og Paul Graham.
Heimasíða Deutsche Börse Photography Prize
jgá
Færðu inn athugasemd